Svar: SKEMMA félagslegan þroska það sagði ég aldrei. Ég sagði að
mikill félagslegur þroski yrði á þessum árum. Ég tel að þessi ár
hafi mikil áhrif á einstaklinginn, þroska hans og persónu.
Félagslífið er oft stór partur af framhaldsskólum og sé ég ekki að
tími yrði fyrir það á þessum 3 árum og það er það sem ég er að
meina, menn þroska sinn félagslega þátt oft mikið á þessum árum og
ég ég vildi benda á að það skiptir máli líkt og annað í lífinu að
þroska félagslegafærni, siðferði og það sem snýr að persónunni sem
einstaklingi ekki bara að læra það sem stendur í bókum.( Ég er ný
búin að skrifa ritgerð um félags- og siðgæðiþroska barna og í
heimildum kemur meðal annars fram að ekki sé nægilega mikilli
athygli beint að þessum þáttum í skólastarfi) Og ég sé ekki tilgang
í því að okkur liggi eitthvað lífið á...afhverju að koma út á vinnu
markaðinn fyrir 20....fyrir utan það að við gerum það að hluta
byrjum ung að vinna á sumrin og margir með námi..sé ekki ástæðu
fyrir því að henda fólki út í þetta lífsgæðakapplaup sem virðist
alltaf vera í gangi eitthvað fyrr en nauðsynlegt er. Jú auðvitað
mundum við útskrifast 19 ára ef við styttum grunnskólann um 1 ár.
Mín skoðun er bara sú að ef stytting þarf að eiga sér stað á hún
ekki að vera í Framhaldsskóla. En eins og ég sagði fyrr og í byrjun
og segi enn aftur mitt mál snýst um að nú þegar er val fyrir þá sem
það vilja en ef stytting verður er verið að skerða val stærsta
hópsins og það er hjá þeim sem kjósa að taka þetta á 4 árum. Ég er
ekki sammála því að skerða eigi val meiri hlutans.
En nóg komið af þesari umræðu og vil ég benda á að þegar fólk
svara að lesa seinustu færslu áður en menn svara....
En nú er hlé á bloggi því minns er farin í próftíð og prófstress
læt heyra í mér eftir próftíð ef ég lifi hana af (sem hlýtur að
vera víst ég lifði 8 af í MA.....og uppköst í prófstofunni og
svefnlausar nætur) en er farin í helv....próftíðarinnar vona að það
verði ekki of heitt