Vegna kvarts og annars verð ég víst að skrifa smá blogg ;o) þeir
taka það til sín sem eiga það Inga og Soffía hehehe
Það er nú ekki mikið að frétta í augnablikinu bara endalaus
skóli og verkefni og vinna og leiðinlegir hlutir sem
gerðust.....finnst ekki við hæfi að setja svoleiðis á blogg
síðu...þannig að....
Komst samt að því í dag að þegar ég dey þá verður það í
íþróttum...líkt og þeir vita sem mig þekkja var ég svo fræg að fá
gríðarlegt skot frá ónefndum manni í andlitið í ónefndum
fótboltaleik...fékk þar á sama tímabili bandýbolta í andlitið..hvað
er málið.....og síðan um daginn fékk ég handbolta í hausinn...og
það var vont
síðan í dag datt ég í fótbolta setti sem betur
fer hendina fyrir mig en fékk svo mikið högg að öxlin nánast gekk
upp í haus og nú er ég bólgin og aum...já þá er það greinilega
ákveðið þetta mun verða minn bani......
Jú ef ég mundi nenna mundi ég gjarnan vilja hefja hér
gríðarlegar umræðum um það sem háttvirtur menntamálaráðherra er að
gera þessa dagana.......
Ég hef ekki skilning á þessari frmakvæmd...hún hefur ekki
nægileg rök fyrir því sem hún er að gera....flestir kennarar og
nemendur mótmæla og hún segir..ég ætla að gera þetta samt...já
og hvað veit hún svo sem um kennslu og skóla..jú með fullri
virðingu fyrir konunni þá er hún ekki menntaður kennari og að
menntamálráðherra og hennar aðstoðarmaður eru ekki fagmenn á sviði
kennslu...hún er lögfræðingur og svo er aðstoðarmanneskja hennar
með einhverja gráðu en hefur aldrei kennt í skóla....afhverju eru
ekki nemendur hafðir með í ráðum þegar verið er að svipta þá
réttindum, og þá meina ég er það ekki okkar réttur að hafa val..nú
þegar hafa þeir sem vilja val um það að ljúka stúdentnum á þremur
árum eða tveimur fyrir þá sem það vilja...afhverju getum við sem
ljúkum þessu á fjórum árum ekki haft okkar val lengur??
Já maður spyr sig...alveg á hreinu að maður kýs sko ekki
sjálfstæðisflokkinn í næstu alþingiskosningum.......
jæja nenni ekki að segja meir en endilega segið ykkar skoðun á
þessu
)
( ef það eru einhverjar ásláttar villur þá sorry nennti ekki að
lesa þetta yfir)